Föstudagskvöld og enn ein vikan búin. Vestanfjöllin hvína og allt í besta lagi, von á hvassviðri. Til gamans var ég að leika mér með útlit síðunnar og er bara býsna ánægð með árangurinn. Afskaplega gaman að breyta til og fá nýtt útlit ekki satt? Á mánudag skiluðum við okkur heim eftir fína ferð til Svíþjóðar þar sem við skelltum okkur á Eurohorse 2010, mjög gaman. Við fundum þónokkuð til með fólkinu í Svíþjóð sem hefur mátt þola snjóþungan og erfiðan vetur, ekki annað eins síðan 1943. Margar góðar myndir tók ég í ferðinni og lofa að einhverjar þeirra verði settar inn á síðuna fljótlega. Eigið góða helgi.