Öðru hvoru í hugleiðingum mínum um reiðvegamál rekst ég á þessa lesningu á veraldarvefnum og kem hér nú á framfæri: http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/Reidvegir/$file/Rei%C3%B0vegir.pdf
Á fögrum degi í Júlí 2012 |
Þeir sem ekki hafa kynnt sér málið, hafa áhuga á þessum málaflokki og málið varðar, hvet ég til að lesa.
Allt of oft er það svo að þeir sem bera ábyrgð á uppbyggingu reiðvega séu alls ekki sammála um hver beri ábyrgðina og hvernig skuli að staðið. Ef lítið er að gert gerist smátt. Reikna með að þetta plagg sé í gildi, ef einhver veit annað væri gott að frétta af því.
Mikið væri nú gott ef að þeir sem að þessum málaflokki koma tækju saman höndum og létu verkin tala. Í Skagafirði er margt mjög ábótavant og líta margir á það sem einkamál hestamanna að byggja reiðvegi, svo er að sjálfsögðu ekki. Hagsmunir sveitafélagsins og ferðaþjónustunnar í heild sinni eru einnig miklir. Reiðvegir eru ekki einkamál hestamenskunnar !
Á mér draum um að þeir sem tilkvaddir eru leggist á árarnar og stefni í átt til meiri framfara.
Magnea
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is