Hrímnishöllin
Á vordögum tókum við þá ákvörðun að selja Hrímnishöllina,
Bjarmaland og Brekkukot sem eru aðal mannvirki og land
hrossaræktarinnar og að auki megnið af hrossaræktinni á Varmalæk.
Hrímnishöllin
er tæpir 1100 fermetrar að stærð og rúmar stíur fyrir 20 hross,
reiðhöll sem hentar mög vel til tamninga/þjálfunar, kennslu og sýninga.
Gestamóttaka er í miðju húsinu og sér yfir hesthús og reiðhöll,
starfsmannaaðstaða og eldhús hannað sem veitingaeldhús, heitt vatn til
upphitunar. Land er talið vera um 700 ha. láglendi og fjalllendi,
grasgefið og möguleikar til ræktunar miklir. Kjöraðstæður fyrir
hrossarækt.
Einnig fylgir ferðaþjónustufyrirtækið Íslenskar
hestasýningar ehf.
Frábær aðstaða og efniviður fyrir áhugasama um hrossarækt og ferðaþjónustu.
Sjá frekar á fmeignir.is