Frumtamningar hófust hjá okkur 3. október þessa mánaðar og fara vel af
stað, tamningamaður með Bjössa núna við þennan kafla er hann Sigurjón
Björnsson. Að okkar mati er mikið af spennandi og góðum trippum á húsi
sem að við bindum vonir við. Eftir vikuna er kominn hnakkur á öll
trippin og gengur ljómadi vel með þau. Feður þeirra eru m.a. Tindur Kristall og Hófur
frá Varmalæk. Aðal frá Nýjabæ, Þokki frá Kýrholti, Kvistur frá
Skagaströnd, Kjarni frá Hruna og Eldjárn frá Tjaldhólum. Afar
spennandi. Veðrið þessa vikuna hefur verið fjölbreytilegt, svona var það einn daginn...
og þann næsta svona...
Hér að neðan sésti yfir fullt hesthúsið.
Það er allaf spennandi að fylgjast með frumtamningum og sjá hvernig gengur með trippin. Á myndinni hér að neðan er hann Sigurjón að kynnast henni Koltinnu á fyrsta degi. Móðir hennar er Tilvera frá Varmalæk og faðirinn Hófur frá Varmalæk.
Björn bóndi er ekki langt undan...
Já það er engin lognmolla í gangi, hér tekur Björn lagið með slíkum tilþrifum að tamningamaðurinn situr þögull, já það er nauðsynlegt að hafa gaman af þessu öllu saman;)
É mun setja inn myndir af tamningum fljótlega og færa ykkur frekari fréttir með bestu kveðjum frá Varmalælk. Magnea