Varmilækur Hrossartæktarbú
Varmilækur Hrossaræktarbú - Icelandic Horse Breeding Farm - Icelandic horses for sale - Meet The Icelandic Horse.

01.05.2013 22:05

Stór helgi

Opið hús, upphaf Sæluviku í Skagafirði, Tekið til kostannna,  kosningar, aðalfundur Kristalsfélagsins...svona var síðasta helgi aprílmánaðar hjá okkur. Helgin var aldeilis frábær, við fengum til okkar góða gesti, Björn fór með tvær hyssur á sýningu í reiðhöllinni á Sauðárkróki á laugardagskvöldið, á sunnudeginum  komu svo Kristalsfélagar til okkar. Líney mætti með gæðinginn okkar og dansaði um sal og völl okkur til ánægju. Kristall er í feikna formi og verður gaman að fylgjast með honum áfram . Ákveðið var að leigja Kristal til notkunar fyrir hryssur í sumar á sanngjörnu verði...endilega hafa samband við Björn á Varmalæk ef einhver hefur áhuga.Fyrir þá sem ekki vita þá er Kristall sonur Kolbrúnar frá Sauðárkróki, Mökkur frá Varmalæk er bróðir hans, faðir hans er Kjarni frá Varmalæk, sonur Kengálu frá Varmalæk og Smára frá Skagaströnd. Myndavélin var í höndum margra þessa dagana og eru það því, Brynja Dögg, Halldór Gunnar, Sigurður Freyr og undirrituð ljósmyndarar... Fullt af nýjum myndum frá helginni má sjá í nýju myndaalbúmi   (http://www.varmilaekur.is/photoalbums/)

Magnea

 
Flettingar í dag: 455
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 614
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 209168
Samtals gestir: 40205
Tölur uppfærðar: 21.12.2024 13:15:27